Jæja...
Gaman að Óskarnum ávallt

Fallegt fólk (Svona upp til hópa) fer í falleg föt (svona yfirleitt), og reynir að vinna gull bikara

Svo mikið af Inverjum í salnum að ég fæ bara University of Bridgeport flashback

Það er nú ekki enn komið að öllum aðal verðlaununum eins og bestu aðalleikurunum og leikkonunum. Mest allt svona bak við tjöldin verðlaun hingað til. Nema náttúrulega Penelope Cruz fékk besta leikkona í aukahlutverki

Hélt nú að Goldie Hawn myndi lenda í svipuðu wardobe veseni og Janet Jackson hér um árið

Hálsmálið á kjólnum ískyggilega opið

Annars fór ég að pæla í því hvað það er ósanngjarnt að vera hvítur...miklu meiri útlits kröfur gerðar til hvítra kvenna en afrísk-amerískra

Sjáum til dæmis Whoopi Goldberg, Jennifer Hudson, Queen Latifah og fleiri góðar þeldökkar leikkonur sem eru já í stærri stærðinni, en öllum virðist vera sama

Hinsvegar þurfa allar hvítu leikkonurnar að helst varla standa upp því þær eru svo lítið nærðar

Ósanngirni

Og að sjálf sögðu fékk Heath Ledger sitt, það kom nú svo sem engum á óvart. Hef nú enn ekki séð Dark Knight en hann átti þetta eflaust vel skilið

Allir táreygðir í salnum þegar fjölskyldan kom og náði í styttuna

Annars þá var auflýsingahlé áðan og í JCPenny's auglýsingu þá heyrði ég ekki bara Jungle Drum með Emiliönu Torrini allt í einu hljóma

Var nú frekar stolt bara
Fyrir tveim vikum þá var nú líka Sigurrós með lag í fyrsta Private Practice/Grey's Anatomy crossover þættinum

Já, Íslendingar að meika það í kreppunni

Annars verð ég að segja að Sigur Rós er bara mjög vel þekkt hljómssveit hér. Flestir spyrja mig um hana sem frétta að ég er Íslensk

Sem kemur sér nú ekkert rosa vel fyrir mig þar sem ég veit nú eiginlega ekkert um hljómsveitina....og þekki ekkert þegar fólk reynir á bjagaðri Íslensku að bera fram einhver laganöfn

Eru ekki líka einhver lögin á einhverju make up tungumáli

Ég kinka yfirleitt bara kolli og þykist alveg vita hvað fólk er að tala um

Þarf að fá svona smá kúrs í Sigur Rós svo ég geti nú svarað einhverju um þetta allt saman
Svo er frekar fyndið að ekkert margir vissu hversu mikil áhrif kreppan hafði á Ísland en nú eru allir voða spenntir yfir því að forsetisráðherran er samkynhneigður

Það sem fólk hefur ekki áhuga á. Verð nú að segja að mér gæti ekki verið meira sama um kynhneigð forsetisráðherra annarra landa

Meira svona að þeir séu ekki að klúðra hlutunum
Svo rifjaði náttla Tim Gunn upp glæsilegan Svanakjól Bjarkar í upphitun fyrir Óskarinn

Íslendingar alls staðar barasta

Annars allt bara ágætt að frétta héðan

Ég bý eiginlega bara ein þessa dagana

Herbergisfélaginn fékk bíl yfir jólin og nú gistir hún ekki lengur hér

Hún mæti bara á milli 8 og 9 á morgnana og gerir sig tilbúna og svo kemur hún stundum heim yfir daginn og horfir á sjónvarpið sem hún borgar ekki fyrir

Veit ekki alveg hvar hún heldur sig þessa dagana

Vangaveltur eru um hvort hún sé hjá kæró og vilji ekki segja foreldrunum og þykist búa hér. Veit samt ekki, samband okkar er voða hljótt
Í hinu herberginu er eitthvað voða drama í gangi

Önnur er búin að vera að ganga í gegnum einhver persónuleg vandamál. Rosa grátkast þar síðasta föstudag, svo kom hún heim rosa hress á Valentínusardag og við skruppum í mollið og hún var voða spennt fyrir kvöldinu

Síðan hvarf hún, nema hvað hún kom með mömmu sinni hér á Miðvikudaginn, þegar ég og hin stelpan í herberginu vorum á leiðinni í kvöldmat og hún var voða þögul og móðirin sagði okkur frá því að þær tvær ætluðu að gista á hóteli nálægt yfir nóttina. Síðan á Föstudaginn frétti svo herbergisfélagi hennar að hún væri flutt út (ekki frá henni sjálfir heldur sameiginlegum vinkonum) og helmingurinn af dótinu hennar er víst farið

Veit eiginlega ekki hvað er í gangi þar og ekki heldur hinir í húsinu

Hin stelpan í herberginu við hliðin á er búin að vera í einhverjum vetrarkúrs og ekkert mæta í skólann síðastliðnar vikur og er alltaf að segjast vera alveg að fara að flytja inn en hefur gist hér eina nótt af önninni

Þetta er víst ein af ástæðunum fyrir að herbergisfélagi hennar fluttist út

Annars er allt voða furðulegt hér í húsinu og ég veit ekki alveg hvað er í gangi

Það veit það eiginlega enginn
Var að horfa á Cast Away í gærkvöldi og líður oft eins og Tom Hanks hérna þessa dagana

Allir fluttir út og rosa hljótt yfir höfuð á heimavistarsvæðinu

Fer bráðum að teikna andlit á bolta til að spjalla við

Neinei...hef nú alltaf verðina að spjalla við

Ein þeirra er rosa á því að kynna mig fyrir einhverjum strák sem hún heldur víst að eigi rosa vel við mig

Veit ekki alveg með það

En ég læt það ekki stoppa mig

Hvort sem einhver er hér eða ekki, þá er ég búin að koma mér ágætlega fyrir og er alltaf að baka, mest megnis vandræði

Eftir bjór bragðandi kanilsnúða og alltof salt garlic brauð, með ógeðslegu hveiti þá er ég öll að skána, og fyrir nokkrum dögum bakaði ég ágætis skúffuköku og múffur

Jæja...ætla að klára að horfa á Óskarinn, nú fer að koma að góðu verðlaununum

Leið um að þessi japanski er búin að taka við útlensku mynda verðlaununum þá hlýtur eitthvað djúsí að koma

Love,
Hanna